Vefkannanir
Tryggjum markviss og fagleg samskipti með vefkönnunum Netspors.

Við þróun og framkvæmum vefkannanir til að auðvelda viðskiptavinum okkar að taka ákvarðanir byggðar á faglegum niðurstöðum. Til þess höfum við á að skipa mjög öflugum hugbúnaði til að gera vefkannanir – um flest það sem viðskiptavinum okkar hentar. Þannig ná þeir að spyrja rétta einstaklinga réttra spurninga á réttum tíma, sem gefur oft ómetanleg svör frá starfsmönnum, viðskiptavinum, stjórnendum og fleiri. Tryggð er full nafnleynd þeirra sem taka þátt í könnunum og geta þátttakendur verið allt upp í mörg þúsund.

Dæmi um vefkannanir Netspors eru greiningar á ánægju og óskum starfsmanna og stjórnar á þáttum t.d. fyrir stefnumótun. Einnig má nefna ánægjukannanir meðal viðskiptavina og allt að því endalaust fleiri möguleika.

Dæmi um möguleika vefkannana Netspors:

Innri samskipti:

  • Kannanir á ánægju starfsmanna 
  • kannanir um heilsu
  • aðbúnað og öryggismál
  • viðhorf og fl.

Ytri samskipti:

  • Ánægjukannanir viðskiptavina
  • mat á verkefnum
  • kannanir á þjónustu og fl.

Þannig geta vefkannanir á einfaldan og fljótlegan hátt svarað spurningum s.s.

  • Skilja starfsmenn nýja stefnu fyrirtækisins?
  • Hvaða þættir eru helstu óánægjuþættir starfsmanna
  • Er þjónusta fyrirtækisins að batna/versna – að mati viðskiptavina
Vefkannanir Netspors auðvelda ákvarðanatöku byggða á rökstuddum niðurstöðum.
 
Netspor - Rekstrar- og Stjórnendaráðgjöf