Starfsmenn

 

Sævar Kristinsson 

  Sævar Kristinsson

Framkvæmdastjóri
sk [hja] netspor.is
GSM: 824 2424

Sævar hefur margra ára reynslu sem rekstrarráðgjafi (m.a. frá Iðntæknistofnun). Hann hefur verið verkefnisstjóri og ráðgjafi fyrir fjölmörg fyrirtæki hérlendis og erlendis, auk þess að koma að stefnumótun margra sveitarfélaga s.s. Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, Akureyrar, Ísafjarðar, Akraness og fl.

Sérsvið Sævars er verkefnastýring á sviði stefnumótunar, ferðaþjónustu, umhverfismála, klasar og markaðsmál.

Sævar er meðhöfundur að ýmsum ritum sem gefin hafa verið út. Eru það meðal annars rit um Klasa, og um Gerð markaðsáætlana ásamt bókinni "Framtíðin - frá óvissu til árangurs" .

Sævar er viðskiptafræðingur - Cand.Oecon frá Háskóla Íslands og auk þess með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur auk þess fjölmargar viðurkenningar á ráðgjafasviði, s.s. að vera með réttindi sem Benchmarking og Air Opera ráðgjafi.  Hann hefur auk þess komið mikið að fyrirlestrum og kennslu á háskólastigi í fögum sem tengjast stefnumótun, sviðsmyndum, rekstrarstjórnun og markaðsmálum.

 

 

Eiríkur Ingólfsson

  Eiríkur Ingólfsson Rekstrarráðgjöf
eirikur [hja] netspor.is

Eiríkur Ingólfsson hefur langa reysnlu af stjórnunarstörfum á Íslandi og í Noregi, m.a. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, véladeildar Heklu hf. og ISS þjónustunnar hf.
Í Noregi hefur Eiríkur starfað m.a. sem verkefnastjóri í atvinnuþróunardeild Þrándheimsborgar og framkvæmdastjóri SiT Bolig AS í Þrándheimi. Að undanförnu hefur Eiríkur unnð hjá ráðgjafa- og verkefnisstjórnunarfyrirtækinu PTL í Noregi ásamt því að vinna með Netspor.

Eiríkur hefur komið að stjórn margvíslegra verkefna á sviði stefnumótunar, markaðsmála. og gerð sviðsmynda.

Þá hefur Eiríkur umfangsmikla reynslu af félagstörfum bæði á Íslandi og erlendum vettvangi.

Eiríkur er viðskiptafræðingur (cand.oecon frá HÍ) að mennt, auk þess sem hann hefur lokið meistarnámi í stjórnun (Master of management) frá BI í Noregi, með áherslu á stefnumótun og framtíðarsýn.

 

Kristján M. Ólafsson

  Kristján
M. Ólafsson

Hagverkfræðingur
Rekstrarráðgjöf og verkefnastjórnun

kmo [hja] netspor.is
GSM: 894 9491

Kristján hefur starfað sem forstöðumaður flutningastjórnunardeildar Samskipa. Áður var hann framkvæmdastjóri GS1 Ísland (EAN á Íslandi). Einnig hefur hann unnið sem sérfræðingur og ráðgjafi hjá Iðntæknistofnun (Nýsköpunarmiðstöð Íslands). Reynsla hans nær til verkefna á sviði ráðgjafar, stjórnunar, samningagerðar, vörustjórnunar (logistics), áætlanagerðar, verkefnastjórnunar og stefnumótunar. Auk þess hefur hann kennt hjá Tækniháskólanum, Háskóla Íslands, Endurmenntunarstofnun HÍ og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Verkefni á sviði ferla-, flutninga- og birgðamála eru sérsvið hans.

Kristján er menntaður hagverkfræðingur (Dipl. Wirt. Ing.) frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi. Áherslusvið námsins voru á sviði verkfræði, viðskiptafræði, hagfræði og upplýsingatækni.

Með virkri þátttöku í félagsstörfum hefur Kristján sinnt áhugamálum sínum. Hann hefur verið formaður Vörustjórnunarfélags íslands, setið í stjórn Verkefnastjórnunarfélagsins og sinnt ýmsum stjórnar og trúnaðarstörfum fyrir Stéttarfélaga verkfræðinga. Einnig hefur hann starfað í stjórn Foreldraráðs Kópavogsskóla og í stjórn skíðadeildar Breiðabliks.

  

 

Friðjón R. Friðjónsson 

  Friðjón R. Friðjónsson

Almannatengill
frf [hja] netspor.is
GSM: 849 6373

Friðjón er reyndur almannatengill og ráðgjafi í miðlun upplýsinga og nýtingu upplýsingatækni. Hann hefur starfað sem almannatengill hjá Góðum samskiptum og var aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Þar áður bjó hann um þriggja ára skeið í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington D.C. þar sem hann starfaði við ráðgjöf á sviði upplýsingatækni og upplýsingamiðlunar, bæði sjálfstætt og hjá Globescope Inc. Hann var einnig sérfræðingur í upplýsingatækni og upplýsingamiðlun í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í um fimm ára skeið. Uppúr síðustu aldamótum var hann vefforritari og viðskiptastjóri á Íslensku vefstofunni. Á meðan Friðjón dvaldi í Bandaríkjunum sótti hann fjölda námskeiða og fyrirlestra um kynningarmál, hagsmunagæslu og skipulag stjórnmálastarfs hjá hugveitum demókrata og repúblikana.

Friðjón er formaður knattspyrnudeildar Vals og hefur auk þess verið virkur í ýmsum félagssstörfum.

 

 

Guðmundur Sigþórsson 

  Guðmundur Sigþórsson

Rekstrarráðgjafi
gs [hja] netspor.is
GSM: 896 9450

Guðmundur hefur áratuga reynslu sem rekstrarráðgjafi. Starfaði um langt árabil með ýmsum fjármálastofnunum við fjárhagslega endurskipulagningu hjá viðskiptavinum þeirra. Auk þess hefur hann sinnt verkefnum á sviði stefnumótunar og leitt sameiningar fyrirtækja sem stjórnandi þeirra, með góðum árangri.

Guðmundur hefur talsvert komið að ráðgjöf til sveitarfélaga vegna atvinnuuppbyggingar.

Sérhæfing Guðmundar er starfsmanna og mannauðsmál auk fjárhags- og rekstrarlegrar endurskipulagningar.

Guðmundur lauk MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2004. Námið var með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1976. Guðmundur hefur sótt fjölda námskeiða hérlendis og erlendis um fjölbreytt efni sem snúa að rekstri fyrirtækja og stofnana.

 

 
Netspor - Rekstrar- og Stjórnendaráðgjöf