Rekstrarstjórnun Aðferðir rekstrarstjórnunar (e: operations management) eru ein besta leið fyrirtækja til að bæta aðlögunarhæfni, koma á stöðugum umbótum og bæta samkeppnishæfni sína. Með skilvirkri rekstrarstjórnun skila allir verkferlar hámarksafköstum, bestu gæðum, lágmarkskostnaði og hámarks nýtingu framleiðsluþátta. Þannig er fyrirtækið í betri stöðu að laga sig að nýjum aðstæðum, er betur í stakk sett við að mæta aukinni samkeppni og getur vaxið í takt við væntingar. Netspor er leiðandi fyrirtæki á Íslandi á sviði ráðgjafar og fræðslu um Rekstrarstjórnun. Hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar með áratugareynslu af rekstrarstjórnun, sem hafa unnið sem stjórnendur og ráðgjafar hjá fyrirtækjum þar sem rekstrarstjórnun og vörustjórnun er stór hluti rekstrarins. Netspor nálgast þessi verkefni með viðurkenndum aðferðum og áratuga reynslu ráðgjafa sinna. Nálgun ráðgjafar byggir á fræðilegri greiningu og hagnýtum og raunhæfum tillögum sem koma má í framkvæmd á tiltölulega stuttum tíma í góðu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk. Ráðgjafar Netspors hafa auk þes stundað kennslu á sviði Rekstrarstjórnunar í háskólum á Íslandi og haldið stjórnendanámskeið um Rekstrarstjórnun og Vörustjórnun (e.“logistics”) hérlendis og erlendis. „Það er hvorki sterkasti né greindasti einstaklingurinn sem lifir af, heldur sá sem er móttækilegastur fyrir breytingum“ Charles Darwin
|