ViðskiptaáætlanirStarfsmenn Netspor hafa í áraraðir aðstoðað viðskiptavini við gerð viðskiptaáætlana. Ef þú þarft aðstoð við að forma viðskipahugmynd eða útbúa markaðsáætlun til að koma góðri hugmyndi í framkvæmd, ekki hika við að hafa samband! Í fókusHorft til framtíðar Nýlega var lokið við gerð sviðsmynda vegna 20/20 Sóknaráætlunar Íslands. Þessar sviðsmyndir eru upphaf að stefnumótun og gerð heildstæðrar atvinnustefnu fyrir Ísland sem ætlað er að gera landið eitt af 10 samkeppnishæfustu löndum heims árið 2020. Netspor kom að stýringu sviðsmyndavinnunnar og má sjá lokaskjalið hér. |
Okkar hlutverk
RekstrarráðgjöfStefnumótun - lykillinn að markvissum árangri! Við erum sérhæfðir í stefnumótunarvinnu og öllu því sem henni tengist. Í því sambandi skiptir meginmáli að ekkert verkefni telst lokið fyrr en aðgerðaáætlun er komin þannig að tryggt sé að verkefnið skili viðskiptavinum raunhæfum árangri. Starfsmenn Netspors hafa þekkingu og tækni til að takast á við stefnumótunarverkefni fyrir mjög ólíkan hóp viðskiptavina, jafnt stóran sem smáan og skiptir þar ekki máli hvort það er fyrirtæki í einkarekstri, íþróttafélag eða metnaðarfull stofnun eða sveitarfélag. Sést það best á fjölbreyttum hópi viðskiptavina Netspors. KlasarKlasarStjórnendur fyrirtækja þurfa stöðugt að afla nýrrar þekkingar og hæfni til að viðhalda samkeppnisstöðu og tryggja vöxt og framgang fyrirtækja sinna. Á síðustu árum hafa menn í auknum mæli horft á samkeppni í víðari skilningi en áður og skoða ekki bara stöðu einstakra fyrirtækja heldur einnig samkeppnishæfni einstakra svæða eða landshluta. Víða um heim hefur myndast svæðisbundið samstarf fyrirtækja, klasar (e. Clusters), sem gefur fyrirtækjum aukinn slagkraft í samkeppni og opnar þeim ný tækifæri til útrásar. Lesa nánarÚtgefið efni![]() SviðsmyndirKomin er út bókin Framtíðin - frá óvissu til árangurs. Notkun sviðsmynda (Scenarios) við stefnumótun. Sjá nánar flokkinn Sviðsmyndir.![]() KlasarStjórnendur fyrirtækja þurfa stöðugt að afla nýrrar þekkingar og hæfni til að viðhalda samkeppnisstöðu og tryggja vöxt og framgang fyrirtækja sinna. Hægt er að nálgast ritið hér.![]() MarkaðsáætlanirRitið Markaðsáætlanir - Markviss sókn til árangurs, er fyrir þá sem vilja á einfaldan og markvissan hátt tileinka sér fagleg vinnubrögð við gerð markaðsáætlana. Hægt er að nálgast ritið hér. |
YfirlitViðskiptavinirÁnægðir viðskiptavinir segja allt sem þarf |
||||||




